|
Velgengni í lífinu er langhlaup. |
|
16.03.2012 22:09Akureyri og norðrið fagra(lagboði: Maístjarnan, Skrifað af Sveinu 30.07.2011 16:11Vísur frá Dísu ömmu á ÍsafirðiAldrei skulu orðin mín ill í reiði fjúka aldrei tóbak eða vín ætla ég að brúka Þetta sagði móðir mín mér í geym sér heiti aldrei tóbak eða vín og eftir því ég breyti Skrifað af Sveinu 23.07.2011 16:03Nú leikur blær um lífsins vorNú leikur blær um lífsins vor og ljóma slær á gengin spor er Drottinn blessar stað og stund við stefnum hingað á hans fund Í von um ást er vaki sönn og veiti gleði í hvíld og önn Þú, Drottinn, verndar heilög heit og hjónabandsins vígða reit. Við eigum hvort hjá öðru skjól og okkur hlýjar lífsins sól En annað ræðst af okkur tveim að efla byggja lítinn heim Og heimur sá er okkur allt er auðgar bæði hlýtt og svalt Því allt mitt líf þú átt með mér og allt þitt líf á ég með þér Við lútum Kristi kærleikans við krjúpum hljóð í nafni hans sem aldrei sínum börnum brást en blessar þeirra tryggð og ást. Hjálmar Jónsson Skrifað af Sveinu 16.07.2011 21:53Ég skal bíða þín.Komdu er vorar þegar sól í dalnum skín þegar vakna aftur óskablómin mín komdu er moldin angar vekur allt sem grær lífið fagnandi af hamingju slær. Allt það besta er á ég skal ég gefa þér alla ást sem brennur heitt í hjarta mér gleði svo að ljómi fögru augu þín tryggð sem aldrei að eilífu dvín. Og tíminn líður klukkan tifar hjartað slær ég finn að stundin okkar færist nær og nær að ósk mín rætust heitust þegar hvílir þú aftur í faðmi mér. Komdu aftur til mín ég skal bíða þín þúsund daga og nætur ef þú verður mín þar til ást mín vaknar og í faðmi mér líf þitt bergmálar við hjarta mér. Komdu er sólin skín lalalala ég skal bíða þín þar til ást mín vaknar og í faðmi mér líf þitt bergmálar í hjarta mér. H.E.M Skrifað af Sveinu
Flettingar í dag: 7 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 8 Gestir í gær: 3 Samtals flettingar: 16947 Samtals gestir: 6765 Tölur uppfærðar: 23.5.2012 23:28:51 |
Tenglar
|