Velgengni í lífinu er langhlaup.

16.03.2012 22:09

Akureyri og norðrið fagra

(lagboði: Maístjarnan, 
texti: Stefán Vilhjálmsson)


Eyjafjörður er fagur, lokkar fjöllin til sín. Gróðri vafinn er bærinn, aldrei vellíðan dvín. Okkur minnir á perlu sem hér merlar og skín. Milli heiðar og Súlna, þar er heimabyggð mín. Hér er Pollurinn logntær prúðum vordegi á, en á óveðursstundum býsna úfinn að sjá. Og í aftöku frostum ísilagður er þá, svo á ganghröðum skautum þarna gamna sér má. Gamli bærinn í Fjöru neðan brekkunnar er, efra garðurinn græni, glóir blómknappur hver. Sér í Kaldbak í norðri, hvíta kórónu ber. Milli algrænna sveita hérna uni ég mér.

30.07.2011 16:11

Vísur frá Dísu ömmu á Ísafirði


Aldrei skulu orðin mín
ill í reiði fjúka
aldrei tóbak eða vín
ætla ég að brúka

Þetta sagði móðir mín
mér í geym sér heiti
aldrei tóbak eða vín
og eftir því ég breyti

23.07.2011 16:03

Nú leikur blær um lífsins vor


Nú leikur blær um lífsins vor
og ljóma slær á gengin spor
er Drottinn blessar stað og stund
við stefnum hingað á hans fund

Í von um ást er vaki sönn
og veiti gleði í hvíld og önn
Þú, Drottinn, verndar heilög heit
og hjónabandsins vígða reit.

Við eigum hvort hjá öðru skjól
og okkur hlýjar lífsins sól
En annað ræðst af okkur tveim
að efla byggja lítinn heim

Og heimur sá er okkur allt
er auðgar bæði hlýtt og svalt
Því allt mitt líf þú átt með mér
og allt þitt líf á ég með þér

Við lútum Kristi kærleikans
við krjúpum hljóð í nafni hans
sem aldrei sínum börnum brást
en blessar þeirra tryggð og ást.

Hjálmar Jónsson

16.07.2011 21:53

Ég skal bíða þín.


Komdu er vorar þegar sól í dalnum skín
þegar vakna aftur óskablómin mín
komdu er moldin angar vekur allt sem grær
lífið fagnandi af hamingju slær.

Allt það besta er á ég skal ég gefa þér
alla ást sem brennur heitt í hjarta mér
gleði svo að ljómi fögru augu þín
tryggð sem aldrei að eilífu dvín.

Og tíminn líður klukkan tifar hjartað slær
ég finn að stundin okkar færist nær og nær
að ósk mín rætust heitust þegar hvílir þú
aftur í faðmi mér.

Komdu aftur til mín ég skal bíða þín
þúsund daga og nætur ef þú verður mín
þar til ást mín vaknar og í faðmi mér
líf þitt bergmálar við hjarta mér.

Komdu er sólin skín
lalalala ég skal bíða þín
þar til ást mín vaknar og í faðmi mér
líf þitt bergmálar í hjarta mér.

H.E.M
  • 1
Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 5
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 16882
Samtals gestir: 6748
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 11:49:50

Tenglar